
Umhverfismál
Sjálfbærni er leiðarstef á öllum stigum starfsemi Thors. Á öllum sviðum framleiðslunnar er lögð rík áhersla á að lágmarka öll umhverfisáhrif um leið og fylgt er nýjustu og hagkvæmustu framleiðsluaðferðum í hátæknivæddu umhverfi, þannig að tryggja megi hámarksgæði framleiðslunnar.
Í eldisstöð Thors fer fram reglubundin vöktun á öllum þáttum framleiðslunnar og líðan seiða og eldisfiska til að tryggja vellíðan og hraðari vöxt.
Starfsemin byggir á hreinni innlendri raforku, náttúrulegu ferskvatni og tærum sjó, þar sem áhersla er lögð á lágmörkun umhverfisáhrifa með hagstæðu hlutfalli fóðurs og afurða. Ekki eru notuð nein eiturefni eða hormón til framleiðslunnar og engin hætta á sleppingaslysum úr eldiskerjum.
Þá tekur Thor þátt í mikilvægum verkefnum á sviði vistvæns eldis:
• Hydros – sem snýst um vöktun og stjórn á vatnsnotkun
• Terraforming LIFE – um nýtingu og meðhöndlun seyru
Úrgangur frá starfseminni er hreinsaður sérstaklega og getur nýst sem áburður, en gætt er sérstaklega að því að ekki verði neikvæð umhverfisáhrif af úrgangi sem til fellur við starfsemina.




