
Um THOR
Thor sérhæfir sig í landeldi á laxi, auk seiðaframleiðslu. Fyrirtækið byggir starfsemi sína á skýrri framtíðarsýn, að Thor verði augljós kostur í laxeldi og með það að markmiði að framleiða hágæða lax með ábyrgum og sjálfbærum hætti á landi.
Öll umgjörð um starfsemina er hönnuð til langtímauppbyggingar, þar sem agi í rekstri, líffræðilegur áreiðanleiki og sjálfbærni eru í brennidepli. Að mati félagsins er Ísland í kjöraðstöðu að verða leiðandi á heimsvísu í sjálfbæru landeldi á laxi.
Thor ætlar að vaxa í vel afmörkuðum skrefum og leggja með því grunninn að ábyrgri, öruggri og rekstrarlega hagkvæmri matvælaframleiðslu sem skilar hágæða afurðum, virðisaukandi þjónustu fyrir viðskiptavini og arðsemi fyrir fjárfesta.

Thor landeldi ehf. var stofnað árið 2022. Á árunum 2024–2025 fékk félagið samþykkt umhverfismat og starfsleyfi fyrir uppbyggingu eldisstöðvar sinnar í Þorlákshöfn. The licence from the Icelandic Food and Veterinary Authority covers up to 13,150 tonnes of maximum biomass at the facility, forming the basis for an annual production of 20,000 tonnes. Preparations for a new licence that would double that production are underway.
Í júlí 2024 hófust framkvæmdir við seiðastöð félagsins og innan við ári seinna komu fyrstu hrognin í seiðaeldið. Áætlað er að seiði fari í áframeldi undir lok árs 2026 og fyrsta slátrun um ári síðar.


Starfsfólk
Að baki félaginu standa aðilar sem búa yfir 100 ára reynslu í eldi á laxfiskum, sem er sú þekking sem skapar sterkan grunn fyrir áreiðanlegt og öruggt landeldi. Starfsmannahópurinn er með mikla og fjölbreytt reynslu.
Fjöldi starfsmanna mun vaxa í takt við vaxandi umsvif.
Stjórnun
Stjórn:
Jónas Engilbertsson (formaður)
Alex Vassbotten
Birna Einarsdóttir
Kristrún Auður Viðarsdóttir
Runólfur Viðar Guðmundsson
Stjórnendur:
Steinþór Pálsson, forstjóri steinthor.palsson@thorsalmon.com
Jónatan Þórðarson, framkvæmdastjóri fiskeldis jonatan.thordarson@thorsalmon.com
Sigurður Örn Jakobsson stöðvarstjóri seiðaeldis sigurdur.jakobsson@thorsalmon.com
Vignir Stefánsson, stöðvarstjóri áframeldis vignir.stefansson@thorsalmon.com
Þorlákur Ómar Guðjónsson, fjárhagsáætlanir og eftirlit thorlakur.gudjonsson@thorsalmon.com
Þórður Þórðarson, lögfræðingur. thordur.thordarson@thorsalmon.com

