Thor landeldi er í hópi fjögurra leiðandi fyrirtæki í landeldi sem hafa undirritað viljayfirlýsingu um að koma á formlegu samstarfi um ábyrga og sjálfbæra meðhöndlun og nýtingu hliðarstrauma frá landeldi. Auk Thors eru aðilar að viljayfirlýsingunni First Water, Laxey, og Samherji fiskeldi.
Viljayfirlýsingin er liður í vinnu sem hófst innan Terraforming LIFE-verkefnisins, sem bæði First Water og Bændasamtök Íslands eru aðilar að ásamt Orkídeu, Ölfus Cluster og SMJ. Markmið verkefnisins er að þróa aðferðir til að umbreyta blöndu af fiskeldismykju úr landeldi sem nota sjó og búfjáráburði í lífrænan áburð og lífgas.
Terraforming LIFE segir viljayfirlýsinguna tímamót sem marki þáttaskil í sjálfbærri auðlindastjórnun á Íslandi.
Markmið samstarfsins er að umbreyta úrgangi í verðmætar afurðir, efla sjálfbærni í fiskeldi og styrkja hringrásarhagkerfið á Íslandi.
Í kjölfar samkomulagsins munu fyrirtækin hefja undirbúning að sameiginlegu félagi sem hafi að markmiði að vinna og nýta fiskeldismykju úr landeldi.
Unnin verður viðskiptaáætlun og greining á fjármögnunarþörf næstu 24 mánaða.
Margrét Ágústa Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands:
„Þessi viljayfirlýsing sýnir að íslenskt fiskeldi er tilbúið að sameinast og vinna að sjálfbærum lausnum. Með þessu sameiginlega framtaki, í samstarfi við Terraforming LIFE og Bændasamtök Íslands er stefnt að því að umbreyta úrgangsstraumum í verðmætar afurðir og styrkja hringrásarhagkerfi Íslands. Þetta er mikilvægt skref fyrir landeldið og til fyrirmyndar.“
Á vef Terraforming LIFE er þessi skuldbinding sögð stórt skref, ekki einungis fyrir Terraforming LIFE-verkefnið, heldur einnig fyrir LIFE-áætlun Evrópusambandsins og markmið hennar um að styðja umhverfislausnir um alla Evrópu.

