Thor landeldi í Þorlákshöfn afhendir Háafelli í Ísafjarðardjúpi um 300 þúsund seiði í þessum mánuði. Jafnframt er fyrirhugað að afhenda yfir 400 þúsund seiði til annarra viðskiptavina seinni hluta ágúst. Góður gangur hefur verið í seiðaframleiðslu félagsins í Þorlákshöfn frá því fyrstu seiðin voru afhent í maí.

Í síðustu viku voru 100 þúsund seiði, um 150 grömm að þyngd hvert, afhent Háafelli og flutt með brunnbáti vestur í Ísafjarðardjúp. Flutningurinn gekk mjög vel og seiðin hafa tekið vel við sér eftir flutninginn. Í þessari viku voru svo samtals um 200 þúsund seiði til viðbótar flutt til Háafells í tveimur ferðum vestur.

Þegar þessum afhendingum lýkur síðar í ágúst verður Thor landeldi búið að afhenda um 1,5 milljónir seiða í sumar.

„Það er mjög ánægjulegt að sjá hversu vel seiðaeldið gengur. Við framleiðum og afhendum seiði til viðskiptavina en jafnframt ölum við seiði fyrir eigið áframeldi. Afhendingarnar í sumar hafa gengið vel og marka mikilvægan áfanga í uppbyggingu starfseminnar,“ segir Steinþór Pálsson, forstjóri Thor landeldis.

Seiðastöðin komin í fullan rekstur

Seiðastöðin hefur verið í fullum rekstri frá síðustu áramótum og getur framleitt fjórar milljónir seiða á ári. Með þeirri framleiðslugetu getur stöðin annað seiðaþörf Thor landeldis vegna 20.000 tonna árlegrar framleiðslu á sláturfiski.

Frá upphafi hefur verið gert ráð fyrir að stöðin gegni tveimur hlutverkum fyrstu árin: annars vegar að framleiða seiði til sölu til annarra fiskeldisfyrirtækja og hins vegar seiði fyrir eigið áframeldi félagsins.

Áframeldið næsta skref

Samhliða seiðaframleiðslunni er unnið að byggingu fyrsta áfanga áframeldisstöðvar Thor landeldis í Þorlákshöfn. Áfanginn verður með 5.000 tonna árlega framleiðslugetu og er að fullu fjármagnaður með hlutafé og lánafyrirgreiðslu Arion banka. Stefnt er að því að taka fyrsta áfangann í notkun undir lok þessa árs og að fyrsta slátrun verði um ári síðar.

Thor landeldi vinnur nú að því að fá framleiðsluheimildir sínar auknar þannig að árleg framleiðsla á laxi geti tvöfaldast, úr 20.000 tonnum í 40.000 tonn.