„Virkilega skemmtilegt var að sækja heim North Atlantic Seafood Forum ráðstefnuna sem fram fór í Bergen í Noregi nú fyrr í mánuðinum, enda um að ræða eina stærstu árvissu ráðstefnu um sjávarfang sem fram fer í heiminum,“ segir Steinþór Pálsson, forstjóri Thors.

Á ráðstefnunni, sem stóð dagana 3. til 5. mars, kynnti Steinþór starfsemi Thors, einstaklega hagfelldar aðstæður til landeldis við Þorlákshöfn og áætlanir fyrirtækisins um vöxt landeldisins upp í að árleg framleiðsla fari yfir 40 þúsund tonn.

North Atlantic Seafood Forum hefur farið fram árlega frá árinu 2005, en á ráðstefnunni koma saman stjórnendur, fjárfestar og aðrir hagaðilar í sjávarútvegi og fiskeldi við Norður-Atlantshaf til að kynna sér nýjungar, bera saman bækur sínar og efla tengsl.

Ráðstefnan hefur verið vaxandi viðburður, en í ár var enn á ný slegið aðsóknarmet, því skráðir voru til leiks yfir 1.150 þátttakendur.

„Á ráðstefnunni var mikil áhersla á laxeldi. Það var mjög svo áhugavert að kynna Thor,  sjálfbærniáherslur og tæknina að baki landeldinu hjá okkur,“  segir Steinþór.

Í erindi sínu fór hann yfir aðstæður og landkosti í Þorlákshöfn og stöðu framleiðslu og uppbyggingar fyrirtækisins, þar sem eldið fer fram í hátæknivæddum lokuðum kerfum þar nákvæm stýring er á öllum þáttum laxeldisins.

Sömuleiðis fór hann yfir áherslur á nálgun við fjármögnun uppbyggingarinnar, þar sem öll stækkun á sér stað í fullfjármögnuðum skrefum.

Frekari upplýsingar um North Atlantic Seafood Forum má finna á heimasíðu ráðstefnunnar.

Steinþór Pálsson forstjóri kynnir starfsemi Thors landeldis á NASF 2026 ráðstefnunni sem fram fór í Bergen í Noregi í byrjun mars.