Myndmerki og heimasíða Thors landeldis hefur fengið andlitslyftingu til að endurspegla vaxandi umsvif og vöxt fyrirtækisins. Nýtt myndmerki, eða lógó, er einfalt og stílhreint á sama tíma og það speglar starfsemi fyrirtækisins.
Um leið og hulunni er svipt af nýju lógói hefur verið sett í loftið uppfærð heimasíða með bættu notendaviðmóti og auknum upplýsingum þannig að þar megi fá sem skýrasta sýn á starfsemi, aðbúnað og stefnu hjá félaginu. Um leið veitir vefsíðan fjárfestum, samstarfsaðilum og öðrum greiða leið að upplýsingum um uppbyggingu félagsins og verkefni þess.
„Ný ásýnd og heimasíða endurspegla vegferð fyrirtækisins og svarar þörfinni fyrir bætta upplýsingagjöf, hvort sem hún snýr að áhugasömum um laxeldi á landi, viðskiptavinum, samstarfsaðilum, fjárfestum eða öðrum. Á nýjum vef er að finna greinargóðar upplýsingar um Thor og eldisstarfsemina, áherslu okkar á sjálfbærni og einstakar aðstæður í Þorlákshöfn,“ segir Steinþór Pálsson, forstjóri Thors landeldis.
Hönnuður nýs myndmerkis Thors er Tinna Pétursdóttir og að gerð vefsíðunnar stóð Kaliber hugbúnaðarhús.
Ný heimasíða og ásýnd styður við kynningu á starfsemi Thors sem þegar hefur hafið framleiðslu á seiðum til laxeldis og er á áætlun í fyrsta áfanga eigin eldisstarfsemi þar sem stefnt er að fyrstu slátrun haustið 2027.
Thor er með leyfi fyrir yfir 20.000 tonna laxeldi á ári. Í fyrsta áfanga er gert ráð fyrir árlegi framleiðslu upp á um 5.000 tonn af hágæða laxi, sem svo verði aukin í skrefum jafnt og þétt. Í undirbúningi er að fá aukin leyfi þannig að framleiðsla geti orðið yfir 40.000 tonn á ári.

