Eftir ítarlega úttekt hefur Thor landeldi nú fengið útgefið starfsleyfi fyrir landeldi fyrirtækisins í Þorlákshöfn. Umhverfis- og orkustofnun gefur út leyfið, en veiting þess var einnig háð leyfum frá Mast.
Umsókn um starfs- og rekstrarleyfi Thors fyrir landeldi vestan Þorlákshafnar með allt að 13.150 tonna hámarkslífmassa á hverjum tíma var send til Matvælastofnunar 4. mars 2024.
Ríflega þrettán tonna hámarkslífmassi á hverjum tíma endurspeglar það magn sem á endanum getur skilað Thor 20 þúsund tonna framleiðslu á laxfiskum á ári.
Matvælastofnun framsendi svo umsóknina til Umhverfisstofnunar 5. mars 2024. Tillaga að starfsleyfi Thors var svo auglýst á tímabilinu 2. desember til og með 30. desember 2024, án þess að athugasemdir bærust á þeim tíma.
Matvælastofnun óskaði jafnframt eftir umsögnum Fiskistofu, Hafrannsóknastofnunar og Sveitarfélagsins Ölfuss. Aðeins barst umsögn frá sveitarfélaginu sem gerði ekki athugasemdir við fyrirhugaða útgáfu rekstrarleyfis.
Starfsleyfi Thors má nálgast á vef Umhverfis- og orkustofnunar, en það nær til seiða- og matfiskeldis á laxi, bleikju og regnbogasilungi. Jafnframt felur það í sér skilyrði um búnað til að koma í veg fyrir að fiskur sleppi úr eldiskerjum og frárennsli.
Fram kemur í leyfinu að eldisvökvinn sé hreinsaður í tveimur þrepum, fyrst með grófrist til að fjarlægja stærri agnir og síðan með tromlusíu til að hreinsa smærri agnir. Búnaðurinn tryggir að líkur á stroki úr eldinu eru óverulegar.

