SAMFÉLAG

Samfélag

Starfsemi Thors landeldis styrkir atvinnulíf og byggðaþróun í Ölfusi og nærliggjandi byggðarlögum. Með vaxandi starfsemi fjölgar starfsfólki auk mikillar vinnu fyrir verktaka á uppbyggingartíma.

Þá framleiðir fyrirtækið hágæða fæðu sem þjónar bæði innlendum og erlendum mörkuðum og styður þannig við matvælaöryggi framtíðar.

Thor vill vera til fyrirmyndar í öllum stjórnarháttum og leggur ríka áherslu á á gagnsæi og reglulega birtingu lykilupplýsinga. Fjármögnun, rekstur og þróun fara fram í ákveðnum og öguðum skrefum til að tryggja sjálfbærni félagsins.