Öflugur gangur er í uppbyggingu Thors landeldis í Þorlákshöfn og vöxtur í samræmi við áætlanir, að því er fram kom á aðalfundi félagsins í dag. Unnið er að byggingu fyrsta fasa áframeldis félagsins með árlegri framleiðslugetu upp á 5.000 tonn og er sá áfangi að fullu fjármagnaður.  Seiðaeldi Thors er þegar komið í fullan rekstur og eru nú um þrjár milljónir seiða og egg í stöðinni. Búið er að gera sölusamninga um stærstan hluta seiðanna.

Unnið er að byggingu fjórtán tanka undir áframeldið sem í heild taka um 52 þúsund rúmmetra. Gert er ráð fyrir að fyrstu tankarnir verði teknir í notkun í haust og að fyrsta slátrun fari fram ári síðar.

Á aðalfundi Thors fóru fram hefðbundin aðalfundarstörf með kjöri stjórnar. Nýir í stjórn og varastjórn eru tveir reyndir frumkvöðlar í atvinnugreininni, þeir Hermann Kristjánsson og Dr.  Jónas Jónasson.

Í reikningum félagsins, sem lagðir voru fram á fundinum, kemur fram að á árinu 2025 var fjárfest fyrir 2.327 milljónir króna bæði í seiðastöð og áframeldi. Eigið fé félagsins nam 2.362 milljónum króna, samanborið við 815 milljónir 2024. Fjárfesting í seiðastöð stendur í 2.220 milljónum króna en stöðin er tilbúin og er framleiðslugeta hennar fjórar milljónir seiða á ári. Tap ársins nam 109 milljónum króna, samanborið við 79 milljónir árið 2024.

„Það var afskaplega ánægjulegt að fara yfir á aðalfundinum hvernig allar áætlanir hafa gengið eftir hjá Thor og finna sömuleiðis stuðning hluthafa við þá vegferð sem félagið er á, meðal annars með samþykkt  á heimild til að fara í allt að þriggja milljarða króna hlutafjáraukningu á næstunni,“ segir Steinþór Pálsson forstjóri Thors landeldis.

Fyrirhuguð framleiðsluaukning er skipulögð í skrefum þar sem hver hluti er fjármagnaður áður en í stækkun er ráðist. Núna er horft til þess að árleg framleiðsla verði á endanum yfir 40 þúsund tonn.

Ársreikning félagsins má nálgast á fjárfestasíðu Thors.

Tölvugerð mynd af því hvernig ætlað er að starfsstöð Thors í Þorlákshöfn líti út í framtíð.