LAXELDI Á LANDI

Laxeldi á landi

Thor landeldi ehf. er hátæknivætt matvælaframleiðslufyrirtæki sem stundar sjálfbært landeldi á laxi í Þorlákshöfn.

Þar eru kjöraðstæður fyrir starfsemina, með aðgangi að miklu magni ferskvatns og gnægð hreins sjávar úr borholum við sjávarsíðuna, auk orku og góðra tenginga inn á alla helstu markaði.

Starfsemi Thors styður við sjálfbæra og hátæknivædda matvælaframleiðslu á Íslandi, með mikilvægu framlagi til byggðar, atvinnulífs og vistvænnar framtíðar. Thor sér tækifæri í áframhaldandi þróun landeldis á Íslandi og vinnur samkvæmt þeirri sýn að landið verði leiðandi á heimsvísu í þeim efnum.

Bygging á seiðaeldisstöð Thors hófst sumarið 2024 og fyrstu hrognin fóru í eldi í maí 2025.

Seiðaeldið er aðskilið öðru eldi til að tryggja öryggi og heilnæmi allrar framleiðslunnar og fer fram í um tvö þúsund fermetra húsnæði með framleiðslugetu upp á um fjórar milljónir seiða á ári. Félagið hefur þannig innri framleiðslugetu til að uppfylla þarfir Thors þegar heildarframleiðsla á laxi er komin í 20 þúsund tonn á ári miðað við núverandi starfsleyfi.

Á meðan áframeldi Thors stækkar upp í 20 þúsund tonn eru seiði einnig seld til annarra eldisfyrirtækja.

Seiðaeldið fer fram í einungis 300 metra fjarlægð frá áframeldisstöðinni, sem gerir að verkum að hægt er að dæla seiðum beint úr ferksvatnstönkum yfir í tanka með sjó.

Gæði framleiðslunnar skipta Thor landeldi höfuðmáli og allar áætlanir miða við að laxinn verði af hæstu gæðum. Allur aðbúnaður og umgjörð tryggja gæði vörunnar. Hjá Thor landeldi koma saman ein mestu gæði ferskvatns og sjávar sem þekkjast, auk tækni og stýringar sem skilar heilnæmi fiska og bestu framkvæmd umhverfismála. >>

Framkvæmdir við áframeldi á lóð félagsins eru komin í fullan gang og miða að 5.000 tonna árlegri framleiðslu á hágæða laxi. Stefnt er að fyrstu slátrun undir lok árs 2027. Árleg framleiðsla í landeldi verður 20 þúsund tonn þegar fullri stærð er náð.

Framleiðsla frá hrognum til fullvaxinna laxfiska er í skýrum og stýrðum skrefum. Umgjörðin og kerfi eldisins tryggja hreint vatn, rétta hitastýringu, gott súrefni og heilnæmi sem skilar sér í hraustum fiski og framúrskarandi gæðum framleiðslunnar.

Áformuð 20.000 tonna uppbygging

Fullkomin stjórn er á öllum þáttum framleiðslunnar. Ferlið byggir meðal annars á tækni þar sem vatn í kerjum er endurnýtt að stórum hluta og ferskvatn nýtt að minni hluta (e. hybrid flow through technology).

Þá er sérhæft stýrikerfi í notkun (e. SCADA system) sem hannað var fyrir stöðina til að veita rauntímagögn og innsýn til að hámarka frammistöðu, greina vandamál og tryggja skilvirkni í gegnum ferla á borð við vatnsgæði, hitastýringar og súrefnisstyrk.

Eldið fer fram í fullkomlega lokuðu umhverfi þar sem engar sleppingar geta átt sér stað og engin þörf er á eiturefnum eða hormónum. Áhætta vegna sjúkdóma er í lágmarki og fylgst er með velferð fiskanna allan sólarhringinn Mælingar, stýring og greining fer fram í rauntíma, allt með það að markmiði að búatil bestu mögulegu aðstæður fyrir fiskinn. Með hátæknivæddu stýri- og eftirlitskerfi Thors er tryggður áreiðanleiki og nákvæmni í framleiðslunni.