Hér sjást fyrstu seiðin sem flutt voru í tanka hjá Thor landeldi.

Fyrstu seiðin hafa nú verið flutt í eldistanka hjá Thor landeldi og taka vel við sér. Á myndbandinu hér til hliðar má sjá að þau fyrstu eru farin að kanna umhverfi sitt og synda upp að yfirborði tanksins.

Í tönkunum er öllum aðstæðum stýrt mjög nákvæmlega til að tryggja seiðunum kjöraðstæður til vaxtar. Afar ánægjulegt er að sjá seiðastöð Thors taka við sér og keyra af miklu öryggi og hnökralaust.