Líflegt er um að litast í seiðaeldi Thors þessa dagana því fyrstu hrognin, 412 þúsund talsins sem lögð voru inn 22. maí síðastliðinn, hafa nú klakist með góðum árangri.
Von eru á næstu hrognasendingu, sem felur í sér 800.000 hrogn, innan fárra daga.
Stefnt er að því að hefja frumfóðrun fyrsta hópsins í A-sal stöðvarinnar í lok júlí. Undirbúningur við hann er í fullum gangi og unnið hörðum höndum að því að klára innviði salarins.
Samhliða er áframeldissalurinn í byggingu og búið að koma upp þaki yfir stóru kerjunum til að rafvirkjar og píparar geti hafið störf.
Sömuleiðis miðar vel vinnu við tæknirými. Þar fer vatn inn í stöðina og í gegnum útfjólublátt ljós (UV-ljós) sem tryggir hreinsun þess. Þá er unnið að uppsetningu stórra varmaskipta- og varmadæla til að tryggja hitastýringu í bæði A- og B-sölum stöðvarinnar.
Auk tæknilegrar og líffræðilegrar uppbyggingar vinnur Thor líka að því að efla mannauð stöðvarinnar, en í gangi eru viðtöl við fjölda áhugasama umsækjendur. Á næstu vikum er stefnt að því að stækka eldisstarfsemina með öflugu teymi í seiðaeldinu.


