Tímamót urðu í starfsemi Thors landeldis þegar í dag var tekin skóflustunga að nýrri seiðaeldisstöð félagsins við Þorlákshöfn. Skóflustungan markar upphafið að uppbyggingu á lóð félagsins.

Skóflustunguna tóku Elliði Vignisson bæjarstjóri Ölfuss og Þórður Þórðarson lögfræðingur Thors og einn stofnenda félagsins.

Stefnt að 20 þúsund tonna framleiðslu á ári

Bygging seiðaeldisstöðvar er fyrsti áfanginn í uppbyggingu félagsins en í framhaldinu verður byggð áframeldisstöð fyrir 5.000 tonna árlega framleiðslu á laxi. Með tíð og tíma stefnir Thor á uppbyggingu laxeldis á landi fyrir allt að 20.000 tonna framleiðslu á ári.

Thor hefur fengið úthlutað 25 hektara lóð undir starfsemina vestan við Þorlákshöfn. Svæðið hentar starfseminni einstaklega vel sökum gnægðar af fersku vatni og hreinum sjó sem dælt er úr borholum.

Fyrstu hrognin koma á næsta ári

Seiðastöðin félagsins verður um 1.800 fermetrar að stærð og gert ráð fyrir að við hana starfi tíu manns og að um hundrað manns starfi hjá félaginu þegar tuttugu þúsund tonna framleiðslu verður náð.

Halldór Ragnar Gíslason framkvæmdastjóri Thors segir mikil tímamót að nú séu hafnar framkvæmdir við eldisstöðvar félagsins eftir mikla undirbúningsvinnu, bæði í hönnun og vinnu við leyfismál.

Gert er ráð fyrir að tekið verði við fyrstu hrognum í byrjun næsta árs og að fyrsti áframeldistankurinn verði klár um tólf mánuðum seinna.

Stöð sem svarar kröfum nútíma laxeldis

Jónatan Þórðarson eldisstjóri Thors segir að eldisstöðin verði góð viðbót við þá öflugu fiskeldisflóru sem sé á svæðinu í kringum Þorlákshöfn og reyndar á öllu Reykjanesi.

„Þetta svæði nú að verða eitt öflugasta svæði í heiminum fyrir landeldi á laxi sem skapar mikil tækifæri í ýmsum hliðargreinum við laxeldið,“ segir hann.

Þá áréttar Vignir Stefánsson stöðvarstjóri að stöðin verði byggð eins og best verður á kosið fyrir nútíma laxeldi, enda séu góð seiði undirstaðan fyrir árangursríkt laxeldi.

„Það er einnig mikill kostur að hafa seiða- og áframeldið nálægt hvort öðru en það verður hægt að dæla seiðum beint úr seiðaeldisstöðinni í áframeldistankana með tilheyrandi kostnaðar- og vinnusparnaði,“ segir hann.

Elliði Vignisson bæjarstjóri Ölfuss og Þórður Þórðarson lögfræðingur Thors landeldis munda skóflurnar við fyrstu skóflustungu að nýrri seiðaeldisstöð félagsins.

Fyrsta skóflustungan að nýrri seiðaeldisstöð Thors markar tímamót í starfseminni og nokkur hópur sem kom saman til að fylgjast með henni.