Fyrstu seiðin úr eldisstöð Thors Salmon í Þorlákshöfn voru afhent nú í byrjun vikunnar. Afhendingin gekk vel og voru yfir 330 þúsund seiði um 100 grömm að þyngd flutt með bílum til Kaldvíkur sem er kaupandinn.

Seiðastöðin er komin í fullan rekstur, ástand seiða er mjög gott og á næstunni verða afhent vel yfir milljón seiði til viðbótar til viðskiptavina. Hluti seiða í stöðunni verður síðar á árinu færður yfir í áframeldi hjá félaginu sjálfu.

„Okkur þykja það sannarlega ánægjuleg tímamót að afhenda fyrstu seiðin úr eldi okkar í Þorlákshöfn og til marks um það hvernig allar áætlanir um uppbyggingu og vöxt ganga eftir,“ segir Steinþór Pálsson forstjóri Thors. 

Unnið er að byggingu fyrsta fasa áframeldis félagsins með árlegri framleiðslugetu upp á 5.000 tonn og er sá áfangi að fullu fjármagnaður.  Fjórtán tankar eru í byggingu fyrir áframeldið sem í heild taka um 52 þúsund rúmmetra. Taka á fyrstu tankana í notkun í haust.

Fyrirhuguð framleiðsluaukning er skipulögð í skrefum þar sem hver hluti er fjármagnaður áður en í stækkun er ráðist. Núna er horft til þess að árleg framleiðsla verði í framtíð yfir 40 þúsund tonn.

Frá fyrstu afhendingu seiða úr fullbúinni eldisstöð Thors landeldis 11. maí 2026.