Thor Landeldi hefur lokið við hlutafjáraukningu að upphæð fjórir milljarðar króna í lokuðu útboði.
Útboðið leiddi framtakssjóðurinn IS Haf með um helming hlutafjáraukningarinnar, en að auki fjárfestu í því Útgerðarfélag Reykjavíkur, Birta lífeyrissjóður, Lífeyrisþjónusta Íslandsbanka og Almenni lífeyrissjóðurinn.
Umsjón með hlutafjárútboðinu hafði fyrirtækjaráðgjöf Arctica Finance.
Kristrún Auður Viðarsdóttir, framkvæmdastjóri IS Haf fjárfestinga:
„Það er mjög ánægjulegt að geta hafið framkvæmdir í byrjun sumars á fullfjármögnuðu áframeldi á laxi á sama tíma og seiðaeldisstöð félagsins hefur rekstur. Fagmennska við uppbyggingu seiðaeldisins og öflug samvinna sjóðsins og stofnenda hefur varðað veginn fyrir næstu áfanga Thor landeldis.“
Runólfur Viðar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Útgerðarfélags Reykjavíkur hf.:
„Við hjá ÚR sjáum Thor landeldi sem tækifæri til að styðja við sjálfbæra og hátæknivædda matvælaframleiðslu á Íslandi. Fjárfesting í landeldi er mikilvægt framlag til byggðar, atvinnulífs og vistvænnar framtíðar. Þróun landeldis er eitt af þeim sviðum þar sem Ísland getur orðið leiðandi á heimsvísu – og við viljum vera hluti af þeirri vegferð.“
Halldór Ragnar Gíslason, framkvæmdastjóri Thor Landeldis:
„Eðlilega eru stofnendur félagsins í skýjunum með þann stuðning sem félaginu er sýndur með aðkomu reynslumikilla fjárfesta að hlutafjáraukningu félagsins. Við höfum átt afar gott samstarf við IS Haf í núverandi uppbyggingu, sem hefur gengið vel, og hlökkum til áframhaldandi uppbyggingar með þessum öfluga hluthafahópi.“
Thor sérhæfir sig í landeldi á laxi við Þorlákshöfn, en með fjármögnuninni verður hægt að ljúka næsta áfanga við uppbyggingu 4.750 tonna áframeldis. Er þar um að ræða annan áfanga af fjórum í vexti félagins sem áformar uppbyggingu á 20 þúsund tonna laxeldi á á ári.
Í fyrsta áfanga, sem lýkur fyrir sumarið, byggir Thor seiðastöð og vinnur að undirbúningsvinnu í rannsóknum. Gert er ráð fyrir fyrstu slátrun úr landeldi Thors haustið 2027.
Á myndinni eru, talið frá vinstri,
Indriði Sigurðsson (Arctica Finance),
Jón Þór Sigurvinsson (Arctica Finance),
Þórður Þórðarson (Thor),
Kristrún Auður Viðarsdóttir (IS Haf),
Vignir Stefánsson (Thor),
Runólfur Viðar Guðmundsson (ÚR),
Jónatan Þórðarson (Thor),
Halldór Ragnar Gíslason (Thor),
Brynjólfur Gísli Eyjólfsson (IS Haf),
Gunnar Rúnar Gunnarsson (ÚR).

