
Fyrir fjárfesta
Stærslu eigendur Thors eru sjóðir í stýringu hjá Íslandssjóðum, IS HAF fjárfestingar slhf. og IS HAF Thor Co-Investment hf. með samtals um 73 prósenta eignarhlut í lok árs 2025. Auk þess eru 10 minni hluthafar í félaginu, stofnendur félagsins og fleiri.
IS HAF er sérhæfður framtakssjóður í rekstri hjá Íslandssjóðum. Útgerðarfélag Reykjavíkur hf. er kjölfestufjárfestir og ráðgjafi sjóðsins, en félagið er öflugt útgerðarfyrirtæki og stærsti hluthafi Brims hf. Aðrir helstu fjárfestar í IS HAF eru Brim og nokkrir lífeyrissjóðir. Eignarhald IS HAF Thor Co-Investment er með svipuðum hætti og hjá IS HAF fjárfestingum.
Thor vinnur eftir skýrri langtímasýn og áreiðanlegri framkvæmdaáætlun. Uppbygging fer fram í skýrt afmörkuðum skrefum. Í fyrstu með byggingu seiðastöðvar sem tekin var í notkun árið 2025 og síðan með uppbyggingu á áframeldi þar sem hver áfangi er 5.000 tonn og sem verður síðan endurtekinn í uppbyggingu aftur og aftur þar til 40.000 tonna eldi er náð. Ætlunin er að fyrsti áfangi í áframeldi verði tekinn í notkun undir lok árs 2026.

Thor er aðlaðandi kostur fyrir fjárfesta.
Vaxandi eftirspurn er eftir sjálfbærum próteinum og laxi á heimsvísu. Einstök staðsetning og öll umgjörð starfseminnar er eins og best verður á kosið með framúrskarandi aðgangi að auðlindum, hreinu vatn, sjó og orku, sem tryggir sjálfbæra og rekstrarlega örugga matvælaframleiðslu. Þá hefur félagið á að skipa öflugum og reyndum hóp starfsmanna með áratuga reynslu í fiskeldi. Félagið býr nú þegar að sterkum og fjölbreyttum eigendahópi.
Áherslan er á að skila langtíma virði fyrir fólk, umhverfi og fjárfesta þar sem byggt er á fjórum stoðum:
Ábyrgt eldi og rekstur – tryggja fyrirsjáanlega og vandaða laxaframleiðslu, velferð fiska og aga í rekstri
Agaður vöxtur og fjárhagslegur árangur – stjórna fjármagni með skilvirkum hætti m.a. með hagstæðum kostnaði við uppbyggingu og virku eftirliti með framkvæmd og skila góðri arðsemi til lengri tíma
Sjálfbærni – starfa á ábyrgan hátt til að vernda náttúru, fólk og langtíma rekstrarleyfi
Markaðsnálgun og virði fyrir viðskiptavini – tryggja fyrirsjáanlegar tekjur með því að vera traustur valkostur sem birgir
Uppbygging félagins er á áætlun og er fjármögnuð í áföngum. Félagið leggur áherslu á traustan fjárhag. Fjögurra milljarða króna hlutafjáraukningu kom til í apríl 2025 til að fjármagna þá uppbyggingu sem nú er í gangi.
Áður en ráðist verður í nýja áfanga verður aflað nýs fjármagns til að styðja við uppbyggingu þeirra og vöxt í framleiðslu.

