EINSTÖK STAÐSETNING

Einstök staðsetning

Við Þorlákshöfn eru kjöraðstæður, einstakar á heimsvísu til landeldis á laxfiskum. Neðan jarðar streymir tært vatn til sjávar í miklu magni, eða um einn rúmmetri á sekúndu fyrir hvern kílómetra strandlínunnar. Ferskvatnið sem veitt er í starfsemi Thors er einungis lítið brot af því magni. Leið vatnsins í gegnum jarðlög úr hrauni tryggir bæði stöðugleika og óvenjumikil gæði, sem er mikilvægt fyrir framúrskarandi fiskeldi Thors á landi. Þá er hægt að nálgast hreinan sjó úr jörðu sem síast hefur í gegnum gljúpt hraunið við sjávarsíðuna.

Starfsemin byggir þannig á aðgengi að einhverju besta ferskvatni og sjó sem þekkist í landeldi úr borholum við sjávarsíðuna. Hvort tveggja, hreint vatn og sjór ásamt nákvæmri stýringu á mikilvægum þáttum eins og flæði, hitastigi, súrefni og koltvísýringi leggur grunn að velferð eldisfiska, vexti og árangri í rekstri. Þá á svæðið sér langa sögu í fiskeldi sem er mikilvægur stuðningur við rekstur félagsins hvað varðar aðgengi að reynslumiklu starfsfólki og viðhorfi í samfélaginu.

Smellið á mynd til að stækka

Öflugir flutningsmöguleikar

Stefnt er að sölu eldisfiska Thors landeldis á alþjóðlegum mörkuðum. Eldisstöð Thors í Þorlákshöfn liggur vel við öllum helstu flutningsleiðum á markaði í sjóflutningum eða flugi.

Í Þorlákshöfn er stórskipahöfn, auk þess sem skammur vegur er til sjóflutningsfyrirtækja í Sundahöfn í Reykjavík. Þá er Keflavíkurflugvöllur skammt undan og því auðvelt um vik að senda vörur í flugi.

Staðsetningin Thors gerir því fyrirtækinu kleift að afhenda vörur innan örfárra daga og tryggir ferskleika og þjónustu sem stenst strangar alþjóðakröfur.