Thor starfrækir sjálfbæra og hátæknivædda matvælaframleiðslu í Þorlákshöfn, þar sem er að finna kjöraðstæður til landeldis og saman koma einstök gæði ferskvatns og sjávar, áreiðanleg orka og öflugir innviði sem tengja fyrirtækið við helstu markaði bæði á Íslandi og erlendis.
Thor sérhæfir sig í landeldi á laxi, auk framleiðslu á seiðum fyrir önnur fiskeldisfyrirtæki. Í Þorlákshöfn er stefnt að árlegri framleiðslu sem gæti numið yfir 40 þúsund tonnum af laxi í eldisstöð sem byggð verður upp í nokkrum áföngum.
Félagið hefur tekið í rekstur seiðaeldisstöð með árlega framleiðslugetu upp á fjórar milljónir seiða og þá er hafin uppbygging á fyrsta áfanga áframeldis fyrir árlega framleiðslu á laxi upp á fimm þúsund tonn. Sú framleiðsla verður svo aukin í skrefum á næstu árum.
Fréttir af starfseminni
Thor landeldi afhendir yfir 700 þúsund seiði í ágúst
Thor landeldi í Þorlákshöfn afhendir Háafelli í Ísafjarðardjúpi um 300 þúsund seiði í þessum...
Fyrsta afhending úr seiðaeldi Thors
Fyrstu seiðin úr eldisstöð Thors Salmon í Þorlákshöfn voru afhent nú í byrjun vikunnar....
Reyndir frumkvöðlar taka sæti í stjórn Thors landeldis
Öflugur gangur er í uppbyggingu Thors landeldis í Þorlákshöfn og vöxtur í samræmi við áætlanir, að...






